Beint í efni
En

Ostóber er tími til að njóta osta

Í október gerum við ostunum okkar sérstaklega hátt undir höfði og fögnum gæðum og fjölbreytileika íslenskrar ostagerðar. Gerum vel við okkur í Ostóber, því nú er tíminn til að njóta osta. 🧀

Sjá nánar

Grísk jógúrt með karamellueplum

Við höfum loksins svarað kalli viðskiptavina okkar og bjóðum nú upp á spennandi sérútgáfu með karamellueplum. Hér er á ferðinni frábært millimál sem inniheldur lítinn sykur og er allt í senn próteinríkt, silkimjúkt og einstaklega bragðgott. Grísk jógúrt með karamellueplum hentar ekki síður sem morgunverður fyrir fólk á hraðferð út í daginn eða létt og ljúffengt kvöldsnarl og ættu unnendur grískrar jógúrtar ekki að láta þessa bragðveislu fram hjá sér fara.

Sjá nánar

Ostakarfa er gjöf sem gleður

Veldu á milli átta ljúffengra og spennandi ostagjafa og bættu við annarri matvöru, víni eða gjafavöru. Frábær gjöf til viðskiptavina, starfsmanna, fjölskyldu og vina.

Sjá nánar

Ostalega góðar hugmyndir

Ostóber setur sinn svip á vikumatseðla mánaðarins hjá Gott í matinn og nýjar og spennandi ostauppskriftir verða kynntar á síðunni. Við hvetjum ykkur til að prófa ykkur áfram - og njóta osta.

Sjá nánar

Vinsælar vörur

Þitt er valið

Öll viljum við borða hollan og góðan mat. MS býður upp á breitt úrval af næringarríkum mjólkurvörum, allt frá smjöri og ostum yfir í skyrdrykki og jógúrt. Í dag er svo komið að neytendur hafa fjölbreytt val í öllum helstu vöruflokkum MS og höfum við unnið markvisst að því síðustu ár að minnka hlutfall viðbætts sykurs í afurðum okkar. Rúmlega 92% af allri mjólk sem kemur til MS fer í hreinar afurðir eða vörur án viðbætts sykurs.

Við erum MS

Mjólkursamsalan er fjölbreyttur vinnustaður og óhætt að segja að ein helsta auðlind MS sé mannauðurinn. Hjá okkur starfa um 450 starfsmenn um land allt sem mynda marga ólíka en samheldna hópa sem eiga það sameiginlegt að búa yfir mikilli reynslu, færni og þekkingu í sínum störfum.
Meginmarkmið okkar er ánægt starfsfólk sem hefur skýra ábyrgð og góða sérþekkingu á sínu sviði sem saman vinnur sem ein liðsheild að markmiðum fyrirtækisins.

Í góðri sátt við náttúru og samfélag 

Mjólkursamsalan einsetur sér í allri starfsemi sinni, allt frá söfnun mjólkur frá framleiðendum til framleiðslu og dreifingar fullunninnar vöru til viðskiptavina, að starfa í sátt við umhverfi sitt og náttúru landsins hverju sinni. Við leitumst við að endurspegla umhverfisvæn sjónarmið í öllum skrefum virðiskeðjunnar og leggjum ríka áherslu á bestu umgengni okkar til verndar umhverfinu og náttúru landsins.

Til að ná sem bestum árangri í umgengni við umhverfi og lífríki, leggur MS megináherslu á eftirtalda þætti sem tengjast umhverfisvernd með beinum hætti: loftlagsmál, vatnsverndar- og frárennslismál og umbúða-, aðfanga- og úrgangsmál.