Beint í efni
En

Hátíðarkveðja frá Mjólkursamsölunni

Senn líður að lokum þessa árs og við þessi tímamót gefst okkur sem störfum hjá Mjólkursamsölunni tækifæri til að líta yfir farinn veg og rifja upp verkefni ársins sem er að líða. Við erum nú sem fyrr einstaklega þakklát íslenskum kúabændum, eigendum okkar, sem standa vaktina allan ársins hring, og viðskiptavinum sem eru okkur hvatning til góðra verka og taka fagnandi á móti fjölbreyttum vörunýjungum sem við setjum á markað á hverju ári.

Um leið og við sendum landsmönnum öllum okkar bestu hátíðarkveðjur viljum við nota tækifærið og nefna nokkrar af þeim nýjungum sem komu á markað á árinu 2023 sem hafa notið mikilla vinsælda frá fyrsta degi.

  • KEA smáskyr í skvísum
  • Hleðsla með karamellubragði
  • Endurbætt LGG+ og LGG+ í fernu
  • Létt og loftkennt Ísey skyr Púff
  • Sumar Hleðsla með kaffi
  • Ísey skyr - mandarínusæla
  • Engjaþykkni með Nóa smá kroppi
  • Ísey skyr próteindrykkur með dökku súkkulaði og vanillu
  • Stout gráðaostur í Ostóber
  • Hektor með jalapeno frá Ostakjallaranum
  • Kókómjólk með hvítu súkkulaði
  • Ísey skyr Púff með sítrónu
  • Portvíns gráðaostur fyrir jólin

Við hlökkum til að færa ykkur nýjar, bragðgóðar og spennandi vörur á komandi ári og vonum að viðtökur verði jafn góðar og áður.

Gleðileg matar- og samverujól.

Kveðja, starfsfólk Mjólkursamsölunnar