
Hækkun lágmarksverðs mjólkur
Í framhaldi af ákvörðun Verðlagsnefndar búvara um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverð á mjólkurvörum, sem birt er á vefsíðu Matvælaráðuneytisins, tekur nýr verðlisti Mjólkursamsölunnar gildi frá 17. febúar næstkomandi.
Listaverð mjólkurvara breytist um 1% og hefur nýr verðlisti verið birtur á ms.is og tekur eins og áður sagði gildi 17. febrúar.