Nýsköpun og vöruþróun
Íslenskir neytendur hafa meira úrval hollra og góðra mjólkurvara en þekkist víða í löndunum í kringum okkur. Það grundvallast á því að um 550 fjölskyldur um land allt reka kúabú í góðri sátt við náttúru og samfélag og vinna úrval afurða úr íslenskri hollustumjólk í fyrirtæki sem þær eiga og stjórna saman.

Ísey skyr í skvísum er gott dæmi um velheppnaða vörunýjung. Skyrið er laktósalaust, próteinríkt og inniheldur aðeins 4% viðbættan sykur. Það er merkt skráargatinu sem er norræn merking fyrir þær vörur sem teljast hollastar í sínum fæðuflokki og er ætlað til að hjálpa neytendum að velja sér hollari matvöru.
Það hefur jafnan verið styrkur Mjólkursamsölunnar að hún hefur verið í takt við tíðarandann og verið fljót að skynja þarfir markaðarins fyrir nýjungar. Þannig hafa Mjólkursamsalan ehf. og forverar hennar náð að skapa mjólkurvörum markaðsstöðu sem þekkist vart í öðrum löndum Evrópu.
Það er ekki tilviljun að meðalmjólkurvöruneysla á Íslandi er 60% meiri en að meðaltali í Evrópusambandslöndunum. Það er árangur áratuga vöruþróunarstarfs sem haldist hefur í hendur við mikinn metnað í framleiðslu og öflugt sölu- og markaðsstarf.


Hugmyndir að nýjum vörum koma víða að. Við eigum samtal við neytendur og verslunina, einnig höldum við hugarflugsfundi með okkar starfsfólki, höfum haft hugmyndasamkeppni og fleira. Einnig leitum við fanga á vörusýningum erlendis, skoðum vöruúrval í öðrum löndum, fáum hugmyndir frá okkar birgjum og svona mætti áfram telja.
Þegar kemur að því að ákvarða hvaða hugmyndir komast alla leið í framleiðslu er farið í bragðkannanir með áhugaverðar bragðtegundir og í framhaldinu er oft farið í neytendakannanir, þar sem við fáum neytendur til að hjálpa okkur við valið. Þær vörur sem koma best út úr því enda því yfirleitt á markaði.
Vöruþróunarstefna MS er margþætt. Hún lýtur að hollustu þeirra matvæla sem MS framleiðir og kröfum markaðarins þar um. Einnig er lögð áhersla á hagræðingu og nýtingu hráefna og umbúða, auk tillits til umhverfismála.
Eftirfarandi markmið skilgreina stefnuna:
- Hafa hliðsjón af ráðleggingum um mataræði
- Bregðast hratt við breyttum kröfum og neysluvenjum
- Sérstök áhersla á að draga úr notkun sykurs í mjólkurvörum
- Samstarf við sprotafyrirtæki, rannsóknastofnanir og háskóla
- Hagræðingar- og nýtingarverkefni
- Bætt nýting hráefna og umbúðasparnaður
- Umhverfissjónarmið