Jóla Púff með eplum og kanil
Ísey skyr Púff hefur vakið mikla lukku frá því það kom fyrst á markað á síðasta ári enda bæði létt og loftkennt og einstaklega bragðgott. Púffið kemur skemmtilega á óvart með einstakri áferðinni og er því gaman að kynna til leiks nýja bragðtegund með eplum og kanil. Hér er á ferðinni sannkallað Jóla Púff og óhætt að mæla með því í aðdraganda hátíðanna og bara hvenær sem er.
Ísey skyr Púff með eplum og kanil hentar fullkomlega sem nesti, millimál eða létt kvöldsnarl og svo má mylja yfir dósina gott kex til að búa til einfalda skyrköku eða nota sem fyllingu í ljúffenga tertu.