Beint í efni
En

KA er Mjólkurbikarmeistari karla árið 2024

Við skálum í ískaldri mjólk fyrir góðu Mjólkurbikarsumri

KA er Mjólkurbikarmeistari karla árið 2024.

Fótboltasumarið í Mjólkurbikar karla og kvenna gekk með eindæmum vel og óhætt að segja að keppnin hafi einkennst af spennandi leikjum allt frá fyrsta degi. Eftir harða keppni stóðu Valskonur uppi sem Mjólkurbikarmeistarar kvenna og KA tryggðu sér titilinn hjá körlunum. Mjólkurbikarinn bauð upp á sannkallaða veislu fyrir áhorfendur þar sem öflugt knattspyrnufólk gaf allt sitt hverja einustu mínútu, í hverjum einasta leik. Markmið MS með stuðningi við fótboltann er m.a. að auka vitund um mjólk og hollustu hennar og tengja fyrirtækið við jákvætt og uppbyggjandi íþróttastarf í landinu.

Við óskum Mjólkurbikarmeisturum ársins innilega til hamingju með titlana og teljum niður dagana þar til boltinn byrjar að rúlla á ný.