Beint í efni
En

Grísk jógúrt með karamellueplum

Gríska jógúrtin í Léttmálslínu MS hefur notið mikilla vinsælda frá því hún kom fyrst á markað fyrir tæpum 10 árum síðan og höfum við nú loksins svarað kalli viðskiptavina okkar og bjóðum nú upp á spennandi sérútgáfu með karamellueplum. Hér er á ferðinni frábært millimál sem inniheldur lítinn sykur og er allt í senn próteinríkt, silkimjúkt og einstaklega bragðgott. Grísk jógúrt með karamellueplum hentar ekki síður sem morgunverður fyrir fólk á hraðferð út í daginn eða létt og ljúffengt kvöldsnarl og ættu unnendur grískrar jógúrtar ekki að láta þessa bragðveislu fram hjá sér fara.