Mjólkursamsalan er framúrskarandi fyrirtæki 2024
Mjólkursamsalan hlaut á dögunum útnefninguna Framúrskarandi fyrirtæki 2024 og er þetta í fimmta skipti sem fyrirtækið hlýtur þessa miklu viðurkenningu. Framúrskarandi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að vera stöðug fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra en aðeins 2,5% íslenskra fyrirtækja teljast framúrskarandi. Að baki viðurkenningarinnar liggur bæði mikill undirbúningur og markviss vinna enda eftirsóknarvert að komast í þennan góða hóp íslenskra fyrirtækja.
Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtækin að uppfylla ströng skilyrði sem sett eru fram af Creditinfo og leggur MS mikinn metnað í að standast þær kröfur sem til okkar eru gerðar. Fyrirtæki þurfa t.a.m. að hafa skilað ársreikningi til RSK á réttum tíma, vera í lánshæfisflokki 1-3, hafa sýnt jákvæðan rekstrarhagnað (EBIT) auk jákvæðrar ársniðurstöðu árin 2021-2023 og eiginfjárhlutfall þarf að lágmarki að hafa verið 20% síðustu tvö ár. Til viðbótar þurfa stærri fyrirtækin að standast ákveðnar kröfur um samfélagslega ábyrgð og sjálfbærni til að vera gjaldgeng á listann.
Auðhumla, samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um allt land og móðurfélag Mjólkursamsölunnar, hlaut einnig útnefninguna Framúrskarandi fyrirtæki í fimmta sinn og á meðfylgjandi mynd má sjá þá Aðalstein H. Magnússon, sölu- og markaðsstjóra MS og Jóhannes Hr. Símonarson, framkvæmdastjóra Auðhumlu taka á móti viðurkenningunum.
Við þökkum Creditinfo fyrir okkur og óskum öllum fyrirtækjunum sem fengu samskonar viðurkenningu innilega til hamingju með árangurinn.