Beint í efni
En

MS styrkir hjálparsamtök um 2,5 milljónir

Mjólkursamsölunni er umhugað um samfélagið sitt og leggjum við mikið upp úr stuðningi við góðgerðarmál af ýmsu tagi allt árið um kring. Fyrirtækið hefur til margra ára lagt hjálparsamtökum lið í aðdraganda jólahátíðarinnar og hefur 2,5 milljónum nú verið úthlutað í formi vöruinneigna til sjö félaga og er það einlæg von okkar að styrkirnir nýtist þeim sem þurfa vel.

Samtökin sem hljóta styrk að þessu sinni eru Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Fjölskylduhjálp Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar og Sjóðurinn góði í Árnessýslu.

Með þessum styrk vill MS leggja sitt af mörkum til að styðja við bakið á þeim stóra hópi sem leitar aðstoðar í formi matarúthlutunar fyrir hátíðarnar en líkt og undanfarin ár þörfin fyrir aðstoð mikil. Enn fremuir viljum við nota tækifærið og þakka stjórnendum og sjálfboðaliðum hjálparsamtakanna fyrir óeigingjarnt starf í þágu skjólstæðinga sinna.