Beint í efni
En

Ostakarfa er gómsæt gjöf sem gleður

Ostóber markar upphafið á jólavertíðinni en ostakörfur eru gómsætar gjafir sem henta einstaklega vel þegar gleðja á starfsmenn, viðskiptavini, fjölskyldu og vini í aðdraganda jólanna. Harpa Hrönn Gunnarsdóttir, sölufulltrúi hjá MS, hefur yfirumsjón með ostakörfugerðinni og á milli þess sem hún kynnir nýja osta í Ostóber er hún farin að huga að jólunum.

„Það er alltaf gaman að fá nýjan ostakörfubækling í hendurnar og setja ostakörfuverslunina okkar í loftið en það þýðir einfaldlega að við getum byrjað að telja niður dagana til jóla,“ segir Harpa. „Við bjóðum nú sem fyrr upp á fjölbreytt úrval ostakarfa til fyrirtækja og einstaklinga en gjafakarfa með íslenskum ostum og sérvöldu meðlæti er gómsæt gjöf sem gleður í aðdraganda jólanna og hægt er að skoða allt úrvalið okkar í ostakörfuverslun MS.“ Þá hefur færst í aukana að fyrirtæki og einstaklingar vilji bæta við annarri matvöru, víni eða gjafavöru í körfurnar og tekur Harpa það sérstaklega fram að það sé meira en sjálfsagt að verða við slíkum óskum og slík viðbótarþjónusta sé viðskiptavinum að kostnaðarlausu.

Hægt er að velja á milli átta ljúffengra og spennandi ostagjafa sem án efa munu hitta í mark hjá ostaunnendum landsins og með einum smelli er hægt að skoða úrvalið í ostakörfuverslun MS og ganga frá pöntun fyrir hátíðarnar.

„Það er upplagt að huga tímanlega að jólagjöfum starfsmanna því jólin verða komin áður en við vitum af og þá eru sölufulltrúar MS ætíð tilbúnir til að svara fyrirspurnum í síma 450-1111 eða á netfanginu ostakorfur@ms.is,“ segir Harpa.