
Páskaosturinn er kominn í verslanir
Páskaosturinn er kominn í verslanir er hann er án efa einn af föstu punktunum í aðdraganda páskahátíðarinnar. Hér er um að ræða bragðmeiri brauðost en margir eru vanir og hefur hann notið mikilla vinsælda síðustu ár. Í ár fékk Páskaosturinn nýjar og bjartari umbúðir og skiptum við bæði um filmu og límmiða til að gera þessum ljúffenga osti hátt undir höfði.
Páskaosturinn er ostur sem ostaunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara en hann er upplagt að nota sem álegg á hvers kyns brauðmeti og þá skemmir ekki að hafa bragðgóða sultu eða marmelaði með.