Smámál með piparmyntusúkkulaði
Smámál frá MS hafa notið vinsælda hjá stórum og smáum í fjölda ára enda eru bestu réttirnir oft þeir sem skilja mann eftir með löngun í meira og þannig er Smámálið. Í fyrsta skipti í langan tíma bjóðum við upp á nýja bragðtegund og mælum við með að aðdáendur súkkulaðibúðinga næli sér í Smámál með piparmyntusúkkulaði í næstu búðarferð. Hér er á ferðinni einstaklega ljúffengur eftirréttur í handhægum umbúðum sem vert er að prófa en varan verður aðeins í boði í takmarkaðan tíma.
Ekki flækja hlutina þegar þú þarft þess ekki og veldu þér einfaldan og bragðgóðan eftirrétt þegar þú vilt gera vel við þig og þína. Við mælum líka með að þú hafir skeiðina í minni kantinum þegar þú smakkar, þá endist Smámálið lengur.