Beint í efni
En

Sveitabiti á tilboði

Sveitabiti er sígildur og bragðgóður brauðostur sem á rætur að rekja til Sauðárkróks þar sem hann hefur verið framleiddur í rúm 20 ár. Upphaflega var osturinn eingöngu seldur bændum í sveitunum í kring og er nafnið þannig tilkomið. Orðspor ostsins barst hratt út og eftir nokkurra ára sölu í Kaupfélagi Skagfirðinga, á Siglufirði og í Húnavatnssýslum varð osturinn aðgengilegur öllum landsmönnum og hefur verið allar götur síðar.

Sveitabiti er mjúkur, mildur og meiriháttar góður ostur og er nú á sérstöku tilboðsverði hjá MS.

Tengdar vörur