Beint í efni
En

Tilkynning - innköllun á Mexíkósosti frá MS

Mjólkursamsalan hefur ákveðið að taka úr sölu og innkalla eina tiltekna framleiðslulotu af Mexíkóosti. Lotan er merkt „Piparostur“ á bakhlið ostsins og „best fyrir“ 26.01.2025 eins og sjá má á myndinni sem fylgir þessari frétt.

Ástæða innköllunarinnar er að þessi tiltekna framleiðslulota er ranglega merkt og þar af leiðandi eru ofnæmisvaldarnir soja og sinnepsfræ ekki tilgreindir.

  • Upplýsingar um vöruna:
    Vöruheiti: Mexíkóostur 150 g
    Rétt strikamerki: 5690516060657
  • Rangur bakmiði:
    Vöruheiti: Piparostur 150 g
    Strikamerki: 5690516060558
    Best fyrir dagsetning: 26.01.2025

Neytendum sem keypt hafa vöruna með framangreindri dagsetningu er bent á að þeir geta skilað vörunni í þá verslun þar sem hún var keypt eða snúið sér beint til Mjólkursamsölunnar. Varan er ekki hættuleg þeim sem eru ekki með ofnæmi fyrir soja eða sinnepsfræjum.

Mjólkursamsalan biður neytendur velvirðingar á þeim óþægindum sem af þessu getur hafa skapast.

Nánari upplýsingar veita starfsmenn gæðadeildar Mjólkursamsölunnar í síma 450 1100 eða hægt er að koma ábendingum á framfæri á netfangið abendingar@ms.is.